31.3.2008
Auglýsing um kynningu aðalskipulagsbreytingar í Garðabæ
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á eftirfarandi tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016, samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi 1.áfanga Urriðaholtsstrætis sem kynnt er samhliða tillögunni. Urriðaholt, Urriðaholtsstræti (viðskiptastræti) Í tillögunni felst eftirfarandi: Breidd helgunarsvæðis breytist úr 60 m í 30 m að jafnaði. Lega strætisins breytist lítillega. Lega göngustíga breytist lítillega og göng undir strætið felld niður. Mörk skipulagssvæða breytast sem færslu strætis og minnkun helgunarsvæðis nemur. Markmiðið með breytingunni er að byggðin í Urriðaholti myndi eina heild og að Urriðaholtsstræti verði breiðstræti, svokallað viðskiptastræti sem rúmi allt að 4 akreinum með hámarkshraða 30-50 km/klst. Breyting þessi samræmist í meginatriðum leiðarljósi og markmiðum Garðabæjar varðandi byggð og umhverfi í Urriðaholti, sbr. aðalskipulag Garðabæjar, rammaskipulag Urriðaholts og fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir viðskiptastræti í Urriðaholti. Áhrifum tillögunnar er lýst í 5. kafla um umhverfismat í deiliskipulagstillögu fyrir viðskiptastræti í Urriðaholti sem auglýst er samhliða þessari aðalskipulagsbreytingu, sbr. hjálagt skjal. Niðurstaða umhverfismatsins er að framkvæmd við Urriðaholtsstræti muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 25.mars til og með 15.apríl 2008. Þær eru ennfremur aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar http://www.gardabaer.is . Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 15.apríl 2008. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim. Vakin er athygli á því að þar sem að um óverulega breytingu aðalskipulags er að ræða er frestur til að skila inn athugasemdum 3 vikur frá birtingu auglýsingarinnar og þar með styttri en frestur vegna þeirrar deiliskipulagstillögu sem auglýst er samhliða.