31.3.2008
Auglýsing um kynningu deiliskipulagtilögu í Garðabæ
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á tillögu að deiliskipulagi Urriðaholtsstrætis, (viðskiptastrætis), 1.áfanga skv 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Urriðaholtsstræti, 1.áfangi. Urriðaholtsstræti er aðalaðkomugata fyrir byggð í Urriðaholti og er útfært og hannað sem breiðstræti. Til grundvallar skipulagsins liggja hugmyndir um gönguvænt og aðlaðandi viðskiptaumhverfi þar sem gætt er að tengslum við náttúru. Áhersla verður lögð á gróðursetningu trjágróðurs í strætinu. Urriðaholtsstræti mun liggja í norð-austanverðu Urriðholti og liggur frá norð-vestri til suð-austurs. Þar hallar landi að Svínahrauni sem er hluti Búrfellshrauna. Neðst í Urriðaholtsstræti verður torg sem nefnt hefur verið Jónasartorg og þar verða gatnamót Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar sem liggur til suðurs um íðbúðarbyggð í Urriðaholti. Við Jónasarorg er nýbyggingu Náttúrufræðistofnunar ætlaður staður. Skipulagssvæðið er 6 ha að stærð og er gert ráð fyrir byggingum beggja vegna strætisins fyrir skrifstofur ásamt tengdri þjónustu fyrir rekstraraðila og verðandi íbúa í Urriðaholti. Aðkoma að svæðinu er frá Reykjanesbraut og síðar er gert ráð fyrir tengingu til suð-austurs við Elliðavatnsveg. Gert er ráð fyrir heildar byggingarmagni sem nemur 27.500 m2 á 3-5 hæðum. Alls verða 8 lóðir í þessum áfanga frá 2.690 m2 að 6.417 m2 að stærð.. Fjarlægð milli húsa við Urriðaholtsstrætis er að jafnaði 30 m og gert er ráð fyrir allt að tveimur akreinum í hvora átt. Tillagan er í samræmi við rammaskipulag Urriðaholts. Samhliða tillögu að deiliskipulagi er í kynningu tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem er í samræmi við deiliskipulagstillöguna. Varðandi umhverfismat deiliskipulagstillögunnar er vísað í auglýsingu vegna aðalskipulagsbreytingarinnar. Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 25.mars til og með 6.maí 2008. Þær eru ennfremur aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar http://www.gardabaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 6.maí 2008. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.