Fréttir

7.8.2008

Fyrsta húsið að rísa í Urriðaholti

Fyrsta húsið rís nú í Urriðaholti, nánar tiltekið við Kinnargötu. Húsbyggjandinn er Hallfreður Emilsson verktaki hjá Stekkjarhúsum. Fyrsta skóflustungan var tekin um miðjan júlí. Byrjað verður að byggja fleiri hús í Urriðaholti innan tíðar og er Hallfreður með nokkur þeirra á sínum snærum.

„Þetta fyrsta hús er einbýlishús sem ég er að reisa í samvinnu við son minn. Auk þess er Stekkjarhús með tvö parhús, fjögurra sérhæða fjölbýli og enn eitt einbýlishús á sínum snærum,“ segir Hallfreður.

Spurður hvernig honum lítist á að ráðast í húsbyggingu við núverandi aðstæður í efnahagslífinu svarar Hallfreður því til að byggingariðnaðurinn hafi alltaf verið sveiflukenndur hér á landi. „Einhver kynni að telja þetta vera óðs manns æði, ekki síst með hliðsjón af því að ég stefni að því að selja flest húsanna. En þá má ekki gleyma að Urriðaholtið er lang flottasta byggingarlandið á höfuðborgarsvæðinu, svo einfalt er það. Ég hef líka fulla trú á að fjármálageirinn rétti úr kútnum.“

Hallferður rökstyður mál sitt frekar. „Urriðaholt er miðsvæðis, hér er einstaklega fallegt útsýni, stutt að komast í gönguferðir um Heiðmörkina, stutt á golfvöllinn, skjólsælt, stutt í þjónustu og svo mætti lengi telja. Ef hús seljast ekki í Urriðaholti, þá seljast þau hvergi.“

Þetta fyrsta hús sem rís í Urriðaholti er rúmlega 300 fermetrar að flatarmáli. „Þetta er mjög skemmtileg hönnun frá arkitektastofunni Kvarða,“ segir Hallfreður. „Húsið er tvær aðalhæðir og ein hálf hæð. Gengið inn á miðhæðinni, þar sem eru stofur og eldhús og tvöfaldur bílskúr, en á neðri hæðinni eru herbergi. Á efstu hæðinni er svo hjónasvíta með sér baði og skápaherbergi, svo og stórum svölum með heitum potti.“

Mynd:
Sökklar fyrsta hússins í Urriðaholti komnir upp. Hallferður Emilsson húsbyggjandi fyrir miðju, Þórhallur Gunnarsson vinstra megin og Hjörtur Jóhannsson hægra megin. Þeir Þórhallur og Hjörtur reka fyrirtækið Fjarðarbygg og hefja senn byggingu parhúss í Urriðaholti.

Til baka