Fréttir

29.9.2009

Fyrstu húsin komin í sölu

Sala er hafin á fyrstu húsunum í Urriðaholti. Um er að ræða parhús við Kinnargötu 2-5. Hvor íbúð er 208 fermetrar á tveimur hæðum og er gengið inn að neðanverðu. Bílskúr er innbyggður og er lofthæð hans óvenju mikil, eða 3,6 metrar. Ótalið í fermetrafjöldanum er 18 fermetra lokað rými inn af bílskúrnum, sem má nota sem geymslu.

Það er Fjarðarbygg sem byggir og selur húsin. Þau eru fullkláruð að utan, steinuð með kvartsi og lóð grófjöfnuð. Að innan er ófrágengið, þannig að væntanlegir kaupendur hafa svigrúm til að laga íbúðirnar að sínum óskum og þörfum. Byggingaverktakar eru Hjörtur Jóhannsson og Þóroddur Gunnarsson. Arkitekt er Eyjólfur Valgarðsson.

Eins og alls staðar í Urriðaholtinu er stórkostlegt útsýni frá húsinu, jafnt yfir Urriðavatn og í átt að Urriðavelli. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málin geta haft samband við Hjört í síma 663-4736.

 

Til baka

Parhúsin að Kinnargötu 3-5 eru fyrstu húsin sem sett eru í sölu í Urriðaholti.

Útsýni af svölunum á Kinnargötu er óviðjafnanlegt.

Séð yfir parhúsin í átt að Urriðavatni.