Fréttir

18.3.2008

Góður gangur í gatnagerðinni

Vel hefur gengið við gatnagerð í Urriðaholti í vetur, að sögn Ágústs Jakobs Ólafssonar, verkstjóra hjá verktakafyrirtækinu Háfelli. Gatnaframkvæmdirnar hófust í september í fyrra og er áformað að þeim ljúki næsta haust.  Ágúst segir að vissulega hafi mikil snjókoma í vetur haft áhrif á framkvæmdirnar. Til að mynda þótti ekki ráðlegt að fara í lagnavinnu, þar sem skurðir voru meira eða minna fullir af snjó. Þess í stað voru verkefni flutt til í tíma og meiri kraftur settur í gatnagerð þar til vorið gengur í garð.  Ágúst segir að mannskapurinn hjá Háfelli sé heillaður af umhverfinu, ekki síst útsýninu yfir Urriðavatn og upp í Heiðmörk.  Verkefnið er mjög umsvifamikið, enda er þetta stærsta einstaka gatnaframkvæmd sem íslenskt sveitafélag hefur ráðist í. Verkefnið snýst um að leggja götur, gangstéttir, gangstíga, holræsi, hitaveitu, rafveitu og vatnsveitu.  Sérstakar varúðarráðstafanir eru gerðar á meðan á framkvæmdum stendur til að enginn spilliefni vegna vélavinnu fari út í Urriðavatn.

Til baka