Fréttir

20.6.2008

Grund reisir hjúkrunarheimili í Urriðaholti

Stórsír Oddfellow reglunnar, Gylfi Gunnarsson, og Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri Grundar, hafa undirritað samkomulag um að Grund fái að byggja hjúkrunarheimili í Urriðaholti. Ætlunin er að heimilið verði allt að 7.500 fermetrar og rúmi hundrað vistmenn.

Síðastliðin tvö ár hefur Grund verið á höttunum eftir lóð undir nýtt hjúkrunarheimili til að koma til móts við yfirvofandi fækkun plássa við Hringbraut. Júlíus Rafnsson segir það hafa reynst árangurslítið að leita á náðir Reykjavíkurborgar en þegar haft var samband við Oddfellow-regluna fyrir tveimur vikum hafi hjólin tekið að snúast. Hann segir að fari allt að óskum megi ætla að framkvæmdir hefjist síðla árs 2009.

Til baka