Fréttir

31.10.2007

ÍAV keyptu heila götu

Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa keypt allar lóðirnar við Mosagötu í Urriðaholti. Þar verða byggð lítil og lágreist fjölbýlishús og raðhús með alls 77 íbúðum. Gatan er miðsvæðis í Urriðaholti, aðeins í seilingarfjarlægð frá skóla og leikskóla. 

ÍAV áætla að hefja framkvæmdir eftir mitt næsta ár og gert er ráð fyrir að fyrstu íbúar flytji inn í húsin eftir um tvö ár.

Gunnar Sverrisson forstjóri ÍAV segir að framkvæmdir fyrirtækisins í Urriðaholti falli vel að verkefnum á vegum ÍAV eru með í gangi og í farvatninu.  Skipulag hverfisins er unnið af miklum metnaði auk þess að vera vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu.  Nálægð við fallegt umhverfi sem býður upp á mikla útivistarmöguleika.  Samgöngur við hverfið eru góðar og stutt er í alla þjónustu.  Gatan er vel staðsett í hverfinu með fallegu útsýni til suðvesturs.

Til baka