6.10.2011
Sameinað eignarhald fjölbýlishúsalóða í Urriðaholti
Stjórnir Urriðaholts ehf. og Ármannsfells ehf. (dótturfélag Arion banka) hafa undirritað skiptingar- og samrunaáætlun sem felur í sér að allar fjölbýlishúsalóðir í eigu þessara félaga í Urriðaholti eru færðar undir sameiginlegt félag undir nafninu Urriðaland ehf.
Skrifað var undir áætlunina í lok september með fyrirvara um samþykki hluthafafunda beggja félaga.
Um er að ræða stóran hlut allra fjölbýlishúsalóða í Urriðaholti, alls 45 fjölbýlishúsalóðir með rétti til að byggja 255 íbúðir. Lóðir Urriðaholts ehf. eru lóðir sem félagið hefur átt frá upphafi en lóðir Ármannsfells ehf. eru lóðir sem bankinn hefur yfirtekið frá verktökum vegna erfiðleika á fasteigna- og lóðamarkaði.
Með þessu samstarfi næst ákveðin hagræðing sem felst í hagkvæmari nýtingu fjármuna við gatnagerð og aðrar sameiginlegar framkvæmdir, markvissari vinnubrögð við skipulag auk lægri sölu- og markaðskostnaðar þegar nýbyggingarmarkaður kemst í jafnvægi aftur.
Sameiginlegt félag verður að meirihluta í eigu eigenda Urriðaholts ehf. (58%) og mun Urriðaholt ehf. annast rekstur félagsins samkvæmt sérstöku samkomulagi þar um.

