7.11.2011
Sjįlfbęr vatnsbśskapur ķ Urrišaholti
Í Urriðaholti í Garðabæ hafa verið farnar nýstárlegar leiðir hérlendis til að tryggja verndun og gæði Urriðavatns. Þessar leiðir eru orðnar ríkjandi við þróun og uppbyggingu nýrrar byggðar víða erlendis en hafa ekki verið nýttar hér á landi áður. Hér er um að ræða svokallaðan sjálfbæran vatnsbúskap (e. sustainable hydrology eða sustainable drainage system), stundum kallaðar sjálfbærar ofanvatnslausnir.
Viðhald vatnsbúskaparins í Urriðavatni er afar mikilvægt fyrir byggðina í Urriðaholti, þar sem Urriðavatn ásamt Búrfellshrauni mynda aðlaðandi umgjörð um byggðina. Urriðavatn er sérlega gróskumikið og lífríkt vatn með fjölbreyttum gróðri og smádýralífi á íslenskan mælikvarða. Þar er einnig tiltölulega mikið af urriða miðað við vötn af þessari stærð, hornsíli og auðugt fuglalíf.
Hér í þessu myndbandi er nánar lýst hugmyndafræðinni á bakvið sjálfbæran vatnsbúskap og hvernig skipulagning við uppbyggingu byggðarinnar í Urriðaholti hefur tekið mið af henni.

